31.12.2021
Ákveðið hefur verið í samstarfi við aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar að vera með starfsdag þriðjudaginn 4. janúar. Þá mun starfsfólk fara yfir stöðuna í samfélaginu og skipuleggja starfið út frá nýrri reglugerð.
Nemendur mæta því í skólann samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 5. janúar 2022.
Með ósk um gleðilega hátíð og farsælt nýtt ár.
23.12.2021
Starfsfólk Gerðaskóla sendir nemendum, forráðamönnum og velunnurum skólans bestu jóla- og nýárskveðjur.
Kærar þakkir fyrir samfylgdina árið 2021.
Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 4. janúar 2022.