Foreldrafélög eru lögbundin skv. 9. gr. laga um grunnskóla
9. gr. hljómar svo.
-Við grunnskóla skal starfa foreldrafélag. Skólastjóri er ábyrgur fyrir stofnun þess og sér til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum. Hlutverk foreldrafélags er að styðja við skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla.
Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð
Helstu hlutverk foreldrafélaga er m.a. eftirfarandi:
- Að styðja við skólastarfið
- Stuðla að velferð nemenda skólans
- Efla tengsl heimilis og skóla
- Hvetja til virkrar þátttöku foreldra í skólastarfi
- Hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu
Foreldrafélagið er alltaf tilbúið að hlusta á góðar hugmyndir frá öllum þeim sem vilja aðstoða það við að uppfylla hlutverk sitt. Endilega sendið okkur línu ef þið hafið eitthvað fram að færa.
Starfsáætlun 2022 - 2023
Í september er stjórnarfundur þar sem aðalfundur er undirbúinn og er aðalfundur haldinn í lok september.
Stjórn hittist mánaðarlega og skipuleggur starfið.
Stjórn Foreldrafélags Gerðaskóla 2024/25:
Hildur Sigfúsdóttir, formaður foreldrafelag@gerdaskoli.is
Ásta Guðný Ragnarsdóttir, gjaldkeri
Valdís Ósk Sigríðardóttir, ritari
Lóa Gígja Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
Sunna Björg Ragnarsdóttir, meðstjórnandi
Hér má finna Facebook hóp foreldrafélagsins