Samkvæmt 92. grein barnaverndarlaga (nr. 80/2002) eru útivistartímar barna
og unglinga sem hér segir: 
Útivistartími yfir vetrartímann (1. september til 1. maí)
- Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20:00.
- Börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22:00.
Útivistartími yfir sumartímann (1. maí til 1. september)
- Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 22:00.
- Börn 13 til 16 ára mega vera lengst úti til klukkan 24:00.
Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag. Sem þýðir að 1. janúar þess árs sem börn verða 13 eða 16 ára lengist útivistartími.