Tengiliður farsældar

Kynning á samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna Farsæld barna (farsaeldbarna.is)

Hvað er samþætting?

Samþætting er skipulögð og samfelld þjónusta sem hefur það að markmiði að stuðla að farsæld barns og er veitt af þeim þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum barnsins hverju sinni.

Hvernig sæki ég um samþættingu í Gerðaskóla?

Til að sækja um samþættingu er nauðsynlegt að hafa samband við tengilið farsældar í Gerðaskóla til þess að fá kynningu á samþættri þjónustu eða biðja um samþættingu. Hægt er að hafa samband með eftirfarandi leiðum:

Hvernig sæki ég um samþættingu?

Jak złożyć wniosek o integrację usług?

Tengiliður Gerðaskóla er Jóhanna María Vignir, náms- og starfsráðgjafi.

Hvað gerir tengiliður? Hlutverk tengiliðar er að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns. Tengiliður tryggir aðgang að frummati Farsældar og styður við samþættingu þjónustu allra þjónustuveitenda á fyrsta stigi. Hann tekur við beiðni foreldra/barns um samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barns og fylgir líka eftir beiðni foreldra/barns um samþættingu þjónustu á öðru og þriðja stigi.

QR kóði

Ósk um aðkomu tengiliðar farsældar

Óska eftir símtali