Viðbragðsáætlun ef Almannavarnir gefa út viðvörun um hættuástand
Upplýsingar eru á: https://www.facebook.com/almannavarnir/ og www.almannavarnir.is
Ef ákvörðun um rýmingu verður tekin þá verða foreldrar að sækja börnin í skólann.
Helstu skref:
- Almannavarnir tilkynna
- Skólastjórnendur upplýsa
- Manntal
- Nemendur í heimastofur
- Foreldrar sækja
Hlutverk skólastjórnenda:
- Koma upplýsingum út í allar stofur skv. upplýsingum frá Almannavörnum.
- Tryggja almenna starfsmenn við alla útganga skólans til að varna því að nemendur hlaupi út (aðalinngangur við stofu 1, inngangur að framan við 1. bekkjar stofu, unglingainngangur og inngangur við húsvarðaraðstöðu).
- Stjórnendur eru í samskiptum við lögreglu og Almannavarnir.
- Skólastjórnendur fylgjast með rýmingarferlinu og aðstoða eftir þörfum bæði foreldra og starfsfólk.
- Skólastjórnendur taka við nemendum þegar þeir verða komnir í safnstofu (stofa 1) og aðrir starfsmenn geta farið heim.
- Skólastjórnendur fara síðastir úr húsi og ganga úr skugga um að allir séu farnir út, gluggar og hurðir lokaðar, útidyr læstar. Að lokum eru upplýsingar veittar til lögreglu og Almannavarna um rýmingu skólahúsnæðis.
Hlutverk starfsfólks:
- Stjórnendur upplýsa starfsfólk um hvað er í gangi sbr. upplýsingar frá Almannavörnum.
- Skólaliðar skipta sér á alla útganga skólans til að varna því að nemendur hlaupi út (aðalinngangur við stofu 1, inngangur að framan við 1. bekkjar stofu, unglingainngangur og inngangur við húsvarðaraðstöðu).
- Allir kennarar taka manntal m.v. nafnalista.
- Ef til rýmingar kemur á meðan frímínútur/matur stendur yfir er hringt inn og nemendum safnað í sínar heimastofur. Alltaf með yfirvegun og ró að leiðarljósi.
- Kennarar ásamt stuðningsfulltrúum skila nemendahópum í sínar heimastofur.
- Gæta þarf þess að enginn nemandi fari úr kennslustofu. Ef nemandi þarf að fara á salerni þá fær hann fylgd.
- Kennari bíður með nemendum inni í stofu þar til foreldri eða staðgengill sækir nemanda. Nemendur fá ekki að fara úr húsi einir. Nemendur í íþróttahúsi og sundi safnast saman í íþróttasal. Nemendur í Skólaseli verða sóttir þangað af foreldrum.
- Kennari/umsjónarmaður Skólasels merkir við á nafnalista þegar búið er að sækja nemanda. Nemendur eru ekki látnir í hendur annarra en eru á aðstandendalista í Mentor eða staðgengla foreldra sem þeir hafa gefið upp fyrirfram til umsjónarkennara.
- Þegar búið er sækja flesta nemendur, verður þeim sem eftir eru safnað í safnstofu af stjórnanda. Kennari afhendir nafna- og aðstandendalista og fer heim.
- Þegar kennari yfirgefur stofuna síðastur þarf að loka gluggum og loka hurðum (ekki læsa).
- Ef nemandi er í íþróttum eða sundi þá þarf íþróttakennari að halda nemendum inni í íþróttahúsinu þar til þeir eru sóttir þangað. Íþróttakennarar verða að halda skrá yfir nemendur og hver sækir þá.
- Annað starfsfólk hjálpar til ef til rýmingar kemur. Starfsfólk fer ekki heim nema í samráði við stjórnendur og með vitneskju ritara.
- Umsjónakennarar senda ítrekun til foreldra í hvaða hópum nemendur eru í sundi og íþróttum þannig að foreldrar viti hvar barnið er staðsett.
Foreldrar:
- Neyðarlínan 112 annast boðun þegar ákveðið hefur verið að virkja viðbragðsáætlunina.
- Foreldrar/staðgenglar þurfa að sækja börnin í sínar heimastofur/íþróttahús. Ef nemendur eru staddir í íþróttahúsinu þá þarf að sækja þá þangað.
- Ekkert barn verður sent út án fylgdar foreldris/staðgengils.
- Starfsmaður verður í skólanum þar til búið er að sækja alla nemendur eða koma þeim í öruggt skjól í samvinnu við lögreglu eða björgunarsveit.
- Foreldrar verða að gera ráð fyrir miklu umferðarálagi í Garðinum og þá sérstaklega við skólann komi til rýmingar á skólatíma. Benda má foreldrum á að jafnvel verður fljótlegra að koma fótgangandi.
- Lögreglan mun leitast við að vera með umferðarstýringu við skóla og leikskóla komi til rýmingar.
Viðbrögð við gasmengun:
- Ef möguleg hætta steðjar að kann að vera betra að halda kyrru fyrir í skólastofum.
- Ef til gasmengunar kemur breytist vinnulagið að því leiti að börnum er haldið í húsi þar til skilaboð berast frá Almannavörnum um annað.
- Loka gluggum og útihurðum. Hækka hita í stofum og bleyta handklæði/tuskur og setja í opnanleg fög. Slökkva á öllum loftræstingum.
Yfirvegun og ró er mikilvæg.
Gerðaskóli 8. mars 2021