Snillitíma sýning

Nemendur í snillitímum buðu gestum á opið hús fimmtudaginn 23. maí.  Það var fullt út úr dyrum hjá okkur og var gaman að sjá hvað margir sáu sér fært að mæta. Verkefni nemenda voru af ýmsum toga og greinilegt að nemendur í Gerðaskóla eru skapandi og með frábært hugmyndaflug sem fær svo sannarlega að njóta sín vel í þessum tímum.

Hægt er að skoða myndir frá kynningunni hér.